Publisher´s version
Thirty-seven dairy cows of the Icelandic breed were used in a change-over design experiment. The aim was to analyse the effects of moderate addition of high-palmitic acid (C16:0) fat supplement to a grass silage-based diet. There were three experimental treatments: a treatment with the fat supplement as powder (FAPOW); a treatment with the fat supplement in pelleted concentrate (FAPEL); and a control treatment (CONTROL). Milk protein content was significantly lower, and there was a tendency (p
Tilraunin sem hér er sagt frá var skipulögð þannig að 37 íslenskar mjólkurkýr voru látnar prófa þrjár fóðurmeðferðir, í mismunandi röð. Markmiðið var að greina áhrif hóflegrar fituviðbótar, aðallega á formi pálmasýru (C16:0), í fóður mjólkurkúa þar sem vothey verkað úr grasi er undirstaðan. Fóðurmeðferðirnar þrjár voru: fituviðbót á formi þurrfitu (FAPOW); fituinnblöndun í kjarnfóðurblöndu (FAPEL); og viðmiðunarfóðrun án fituviðbótar (CONTROL). Hlutfall próteins í mjólk var lægra og tilhneiging til hærra mjólkurfituhlutfalls þegar fitu var bætt í fóðrið. Þetta leiddi til marktækt hærra fitu: prótein hlutfalls í mjólkinni í fóðurmeðferðum með viðbótarfitu í samanburði við viðmið (FAPOW 1.21 og FAPEL 1.20, samanborið við CONTROL 1.15). Lækkun á hlutfalli kaseins í mjólkurpróteini vegna fituviðbótar í fóðri skýrir áðurnefnda lækkun á heildarpróteini í mjólk. Styrkur frjálsra fitusýra í mjólk var hærri þegar fitu var bætt í fóður, sérstaklega þegar það var gert í gegnum kjarnfóðurblöndu (FAPEL). Hlutfall pálmasýru af fitusýrum í mjólk var hærra þegar fitu var bætt í fóðrið.
Agricultural Association of South Iceland; The Icelandic Cattle Productivity Fund; The Dairy Industry Association (SAM)